05 April 2010

Páskar














Páskarnir eru búnir að vera fínir. Strákarnir fengu að smakka páskaegg og fannst þeim það ekki vont. Annars erum við búin að vera bara í leti og hafa það gott. Öll 6 :-)

04 April 2010

Prufum aftur




Jæja gott fólk. Reynum upp á nýtt að blogga.

Byrjum í janúar 2010.
Strákarnir byrja hjá dagmömmu í janúar og eru þeir bara nokkuð hressir hjá henni.
Febrúar: Ég byrja að vinna og strákarnir enn hjá dagmömmunni. Gengur bara vel.
Mars: Strákarnir 1 árs ! Jibbý...

17 September 2009

Spítalaferð

Við skruppum aðeins í MAX á sunnudaginn og strákarnir sofnuðu í bílnum á leiðinni. Við settum þá í kerruna og létt teppi yfir til að verja þá fyrir vindi og forvitnu fólki :-)


Eftir smá stund sé ég fæturna á Atla hreyfast aðeins og hugsaði með mér að hann gæti varla verið að vakna núna, rétt ný sofnaður, þannig að ég kíkti á hann. Það sem blasti við mér var Atli fölgrár í framan. Ég legg hendina mína að kinninni hans og finn að hann er ískaldur (samt með húfu á höfðinu og í peysu og ullarsokkum). Ég kíki á hendurnar á honum og sé að þær eru jafn gráar og andlitið þannig að ég tek um þær og finn að þær eru líka ískaldar. Mér dauðbrá auðvitað og ætlaði að rífa krakkann upp úr stólnum. Ég losaði beltið en náði ekki að losa það sem var á milli fótanna á honum (nei, ekki það.... heldur beltið :-) þannig að ég lyfti honum aðeins upp og þá opnar hann augun og er hálf sloj að sjá.


Ég ákvað að láta hann vera í stólnum áfram en fylgjast með honum. Eftir nokkrar mínútur sjáum við roðann koma fram í kinnarnar og hann fer að skoða sig um.


Eftir ca. 15 mín. förum við í aðra búð sem er rétt hjá og aftur eru þeir sofnaðir í bílnum. Ég tók ekki sjensinn á Atla og hafði teppið ekki fyrir honum í þetta sinn og hafði hann lausann í stólnum. Þegar við vorum búin að vera í kringum 20 mínútur í búðinni sé ég Atla fölna í framan. Ég passaði mig að panikka ekki, heldur lagði ég hendurnar mínar á kinnarnar á honum og kallaði á hann þangað til hann opnaði augun. Hann var hálf undrandi á þessu veseni í mér og horfði hissa í kringum sig. Eftir þetta ákváðum við að fara heim.

Um nóttina höfðum við hann upp í hjá okkur og hann tók 1 sinni svona andköf en annað var það ekki.

Á mánudeginum hringi ég og panta tíma hjá lækninum hans, honum Þórði Þórkelssyni en byð ritarann um að láta hann hringja í mig. Ég hringdi líka í lækninn minn og hann sagði mér að taka hann af Zantacinu og alls ekki gefa honum það nema Þórður gefi grænt ljós á það, þetta gæti verið ofnæmisviðbragð við lyfinu. Atli var mjög eyrðarlaus og ómögulegur allan mánudaginn.


Þórður lætur mig bíða eftir sér og hringir kl 16:30. Þar fer ég yfir söguna á sunnudaginn og hann segist ætla að ráðfæra sig við vakthafandi lækni og að hann hringi innan skamms. Hann hringdi 10 mín. síðar og segir að hann vilji leggja Atla inn, að honum lítist ekki á þetta ástand á stráknum og að það sé vert að skoða þetta nánar. Hann vildi setja hann í Monitor sem mælir hjartslátt og súrefnismettunina, taka blóðprufu og setja hann í heilarit til að athuga flog.

Við mættum þarna um kl 21:00 og hann var hitamældur, blóðþrýstingsmældur og gerður tilbúinn til innlagnar. Svo þurfti að taka blóðprufu og hún var tekinn úr höfðinu á honum og leggur skildur eftir í ef hann þyrfti lyf í æð. Ég fór nú bara fram á meðan og það sem drengurinn orgaði... úff.


Við fórum síðan upp á 2 hæð þar sem barnadeildin er og fengum sérherbergi þar yfir 1 nótt. Milli kl 02:00 og 03:00 var hann ómögulegur í rúminu en ég sá ekki mettunina fara neitt niður fyrir 95%. Um 3 leytið gaf ég honum að drekka og lagði hann aftur.


Um kl 06:30-07:00 vakna ég upp með hjúkrunarfræðing standandi við rúmið hans Atla og er eitthvað að toga í hann. Ég kíki strax á skjáinn hans og sé að mettunin var í 85% en viðmiðið er 90-100%. Hann virtist ná sér strax eftir þetta og ekkert kom upp á þennan dag. Við fórum aðeins í leikherbergið þegar Ívar kom um hádegið og síðan vorum við bara inn á herbergi.

Næsta dag (miðvikudag) var ákveðið að hann færi í línuritið kl 11:00 á Fossvogi. Ritið tók 20 mín og átti Atli að vera kjur á meðan (aha... barn sem er að verða 6 mánaða) Síðan var farið aftur upp á barnaspítala þar sem beðið var eftir niðurstöðu og gangi mála. Ívar kom um kl 13:00 og lékum við okkur aðeins. Um kl 14:30 var komið til okkar og við útskrifuð þar sem línuritið kom eðlilega út.

Atli á að hætta á Zantacinu og fara á bakflæðislyf sem heitir Losec, en það er sterkara og þarf bara að gefa 1x á dag en ekki 3x eins og zantacið. En hvað var það sem gerðist?:

Útskýring læknanna er sú að hann hafi fengið bakflæðiskrampa. Þá fer bakflæðið af stað upp þyndina og veldur krampa í berkjum sem síðan valda skort á súrefni og súrefnismettunin fellur. Atli blánar, hvítnar eða gránar. Þeir segja þetta ekki alvarlegt, frekar óþæginlegt og taka ber með varúð.

Blóðprufan hans Atla kom ágætlega út nema að hann var hár í rauðum blóðkornum, sem bendir til sýkingar, getur verið kvef þess vegna. Hvítu blóðkornin voru of lág en þau hjálpa til við að takast á við sýkingar, síðan var hann lágur í natríum (sölt) Þórður læknir gaf honum endurkomu tíma í blóðprufu eftir 3 vikur. Allar mælingar og öll gildi eru innan eðlilegra marka en vert að taka stöðuna aftur til að sjá þróunina hjá honum.




























30 August 2009

Bíóferð

Í gærkvöldi 29. ágúst ákváðum við hjónin að fara í bíó, en þó með nokkurradaga fyrirvara þar sem við þurftum pössun fyrir krakkana. Við fórum út að borða áður og ákváðum að fara á mynd sem var sögð kl 22:30. Við komum i bíóið borguðum 2200 fyrir miðana,keyptum okkur þetta hefðbundna, popp og kók og glæpsamlegt nammi í poka á 2.300 (tæplega) kílóið!! (Þegar flestar búðir eru að selja nammið á 800kall kílóið á laugardögum).

Nú, við vorum komin inn í salinn 3 mín í hálfellefu. Kl 22:48 eða 30 mínútum síðar hefst myndin. Á þessum 30 mínútum voru auglýsingar og myndbrot úr væntanlegum myndum. Þetta er algjörlega fyrir neðan allar hellur að LÁTA fólk sitja í meira en 30 mínútur að horfaá auglýsingar og myndbrot ( sem eru auglýsingar fyrir bíóið) þegar bíóverðið er svona hátt!!

Við hljótum að vera búin að borga fyrir myndina með því einu að borga okkur inn í bíóið. Ég veit að að fara í bíó er val hvers og eins en þetta er orðin rík hefð hjá íslendingum og ekki gert oft á þessu heimili. Ef bíóverðið kemur ekki til með að lækka verulega eða auglýsingum fækka mun ég hvetja alla þá sem standa mér næst að hundsa auglýsingatíma bíóanna og fara inn í salinn á þeim tíma sem myndin BYRJAR í raun og veru.

Einnig hvet ég bíóin að setja réttann tíma í blaðaauglýsingar með það hvenær myndirnar byrja. Það er mjög villandi og óréttlátt að auglýsa mynd kl 22:30 þegar rauntími er 22:50. Einnig hvet ég bíóin að taka út hlé svona seint á kvöldin.

over-grumpy

15 August 2009

Migreni

Föstudagsmorgunin byrjaði þegar ég vaknaði rúmlega 6 með dúndrandi hausverk. Fór fram og fékk mér 2 parkodin og reyndi að leggja mig aftur en það gekk ekki. Fljótlega magnast ógleðin og ég skýst fram á klósett til að kasta upp.

Á meðan ég var að gubba fékk ég yfirliða tilfnningu en þar sem ég var nálægt vaskinum skvetti ég vatni framan í mig og taldi þetta tilfallandi. Ég vakti Stebba til að sjá um krakkana 4 og staulaðist aftur í bólið. Ekki gat ég sofnað heldur velti mér á alla vegu á meðan ég barðist við ógleðina.

Enn á ný þurfti ég að fara á klósettið að gubba. Aftur kom þessi yfirliðatilfinning þannig að ég bað Kristófer að vera hjá mér á meðan ég gubbaði, en Stebbi fór út í búð með strákana og Eirdísi. Aftur staulaðist ég í bólið grenjandi af verkjum. Ekki gat ég verið lengi þar og lagðist því í rúmið hennar Eirdísar sem er beint á móti wc.

Enn á ný þurfti ég að gubba og skreið inn á klósett. Núna var Stebbi kominn heim með krakkana. Á meðan ég gubbaði leið nánast yfir mig. Ég náði opna klósettið og kalla á Stebba áður en ég lagðist á gólfið gubbandi í næsta handklæði sem ég fann....

Stebba leist ekkert á blikuna enda var ég kaldsveitt og illa til reika þar sem ég lá á gólfinu og grét af sársauka. Hann hringdi á læknavaktina sem sagði honum að hringja á sjúkrabíl.

Ég tók það ekki í mál heldur bað hann að hringja í pabba sem kom strax og keyrði mig á bráðamóttökuna. Ég gubbaði og grenjaði í bílnum hjá pabba á leiðinni. Þegar við vorum komin uppeftir sendi ég hann inn á undan mér til að ég þyrfti ekki að standa í röð með útælt handklæði, kófsveitt og með grátbólgið handlitið.

Pabbi kom svo trillandi út í bíl með hjólastól og ég þurfti að fara í afgreiðsluna þar sem ég rétt náði að staula upp kennitölunni minni. Mér var síðan trillað í herbergi 3 þar sem blóðþrýstingurinn var mældur og súrefnismettunin mæld. Allt í góðu þar.

Ég var með doða í útlimum sem stafaði af oföndun. Því næst var mér trillað í ,, eitthvað,, herbergi (ég var allvega ekki með rænu til að átta mig á því hvar innan spítalans ég var stödd ) Í þessu herbergi var settur upp leggur til lyfjagjafa og blóðsýni tekið. Mér var gefið ógleðistillandi lyf sem áttu að virka á 5-10 min en ég fann einhverja virkni kikka inn eftir 25 min. Á þeim tíma var ég búin að gubba 2x fyrir framan hjúkkuna sem vorkenndi mér rosalega mikið og snérist í kringum mig eins og ég vildi :-)

Því næst fór þessi hjúkka til að ath hvað læknirinn vildi hvað ætti að gera næst. Á meðan lá ég í rúminu í spítalaslopp og reyndi að dorma.

Einhverjum mín seinna kemur hún inn með sprautu og lyfjakokteil sem samanstóð af parkodin forte og partabs. Í sprautunni var einhverskonar ibufenblanda, bara mikið öflugri sem sprautað var í lærið á mér.... argh ógeðslega vont, en betra en hausverkurinn. Síðan gleypti ég pillukoktelinn.

Því næst slokknaði á mér í rúma klst. Þegar ég vaknaði var ég mikið betri en pínu sloj. Mér var trillað inn á eitthvað herbergi til að jafna mig, fljótlega kom læknir sem gerði n.k. taugatest á mér, bara svona dummy test. Setja puttana á nefið á mér og þannig og hvaða putta er hún að hreyfa.

Rétt um kl 16:00 vildi ég fara heim og fékk það :-)

Ég var bara nokkuð hress þegar ég kom heim. Byrjaði að því að fá mér parkodin og panodil. Í morgun var ég eins og það hefði verið keyrt á mig en það kom nú fljótlega. Mamma kom rúmlega 9 í morgun og vorum við að spjalla og hugsa um strákana. Pabbi kom svo í hádegismat og þau fóru um 2 leytið. Núna er ég bara nokkuð hress þó það taki mig örugglega morgundaginn líka að jafna mig.

Heyrumst

12 August 2009

Myndir

Ívar Alexander



Íbba krútt




Atli Dan





Atli sjarmatröll